Home › Umræður › Umræður › Ís- og alpaklifur › Hergarsprayið
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
11. desember, 2006 at 11:37 #45176SkabbiParticipant
Hæ
Síðastliðin laugardag renndum við Siggi Tommi, Freysi og Sissi inn í Fljótshlíð, nánar til tekið í Marðarárgil. Þar höfðum við séð vænar línur nokkrum vikum áður og ætluðum að láta reyna á klifur. Í stuttu máli þá er gilið vel flott og eftir lengri frostakafla má eflaust velja úr mörgum hardcore línum þarna. Haustið er tíminn fyrir Marðarárgilið, því aðkoman verður eflaust horror þegar færð þyngist.
Siggi hefir gert greinargóða lýsingu á sínum mínum síðum.
http://isalp.is/art.php?f=86Að auki, fyrir fróðleiksfúsa, hefi ég hent inn fleiri myndum af gósengilinu hérna:
http://www.vonlausa.org/gallery/view_album.php?set_albumName=album58Frost í kortunum, bújah!
Allez!
Skabbi
11. desember, 2006 at 12:38 #508100311783479MeðlimurFlottar myndir og klassa leidir drengir, greinilega mikid lif i isklifri a Islandi thessi misserin!
kv.
Halli11. desember, 2006 at 13:23 #50811Siggi TommiParticipantJá, þetta var sérdeilis prýðilegt. Aðkoman vel undir meðallagi. Engar horror brekkur eins og Múlafjalli eða massalabb eins og Eilífsdal. Smá föndur á broddum ofan í gilið en alls ekki svo voðalegt.
Spurning um að halda festival þarna og fara þessar megalínur…Hefur annars einhver kíkt á ís á Snæfellsnesi (einkum Mýrarhyrnu) eða í Haukadal?
Jökull, varstu búinn að kíkja í Kinnina? Kem norður 22. (verð líklega fram á nýársdag) og stefni á að heyra í þér upp á partnership þangað ef þú þorir…11. desember, 2006 at 20:21 #50812Björgvin HilmarssonParticipantSnilld!! Thetta lítur vel út. Geri rád fyrir ad thid félagar munid stúdera svaedid betur á naestu vikum. Heilt nýtt svaedi í safnid thad er ekkert annad. Til hamingju.
Enn íslaust hér vestan hafs…
Kv. Gringo
12. desember, 2006 at 20:16 #50813AnonymousInactiveEf mig minnir rétt þá er þetta sama gilið og ég og Palli fórum niður í og klifruðum eina létta leið í fyrir 2-3 árum síðan. Við vorum á leið í árlega haustlitaferð okkar fyrrverandi undanfara HSSR.
Kveðja Olli12. desember, 2006 at 21:38 #50814Stefán ÖrnParticipantGlæsilegt drengir!
Maður verður að kíkja á svæðið við fyrsta tækifæri!
Steppo
-
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.