Íslkifurnámskeið Ísalp og netklúbbs ÍFLM var haldið núna á sunnudaginn með 12 þátttakendum og 3 leiðbeinendum í fullkomnu veðri og aðstæðum inni í Glymsgili.
þar sem mun færri komust að á þessu námskeiði en vildu er stefnt á að halda annað von bráðar. Sendið póst á ivar@mountainguide.is ef þið viljið fá frekari upplýsingar um það.
Svo vill ég endilega benda þeim mörgu sem leggja leið sína inn í Glymsgil á að það er miklu skemmtilegra að fara í gegnum hellinn og yfir vírinn þegar farið er ofan í gilið, sparar reyndar engan tíma en er flottara.