Home › Umræður › Umræður › Klettaklifur › Boltun klifurleiða – fræðsluefni
- This topic is empty.
-
HöfundurSvör
-
20. apríl, 2012 at 17:28 #449690503664729Participant
Fræðsluefni um boltun klifurleiða er torfundið en úr því hefur nú verið bætt.
Grein sem ég tók saman um þetta efni er nú aðgengileg á heimasíðu Klifurhússins. Greinin miðast við aðstæður á Íslandi og er komið inn á ýmsa þætti sem snúa að boltun svo sem siðferði, aðferðir og efnisval.
Þótt hún gagnist kannski fyrst og fremst þeim sem bolta eða hafa hug á að bolta leiðir þá kann hún einnig að nýtast hverjum þeim sem stunda klifur.
Greinina, sem er á pdf-formi, er hægt að hlaða niður hér:20. apríl, 2012 at 20:45 #57693HrappurMeðlimurÉg er nú ekki endilega sammála því sem sagt er um heit-galvaniseraða bolta og ryðfríar hengjur enda er tæringin sem sýnd er á myndinni ekki vegna mismunandi spennu-raðar efnana heldur vegna þess að zinkið hefur marist af og endinn á boltanum hitnað þegar hann var barinn inn. Róinn, boltinn og skrúfgangurinn eru ótærð enda varin zinki. Svona bolta/hengju samsetning hefur í flestum tilfellum enst í yfir 20 ár sem ætti að vera sá tími sem boltar eru endurkoðaðir og yfirfarnir hvort sem þeir eru ryðfríir eða ekki.
20. apríl, 2012 at 22:03 #576940503664729ParticipantTakk fyrir viðbrögð Hrappur.
Skoðanir eru skiptar og gott að halda því á lofti. Varðandi heitgalvaniseringuna þá er málið að vísu ekki svona einfalt. Mér hefur ekki tekist að finna gamla heitgalvaniseraða bolta sem hafa verið í snertingu við ryðfrítt stál án þess að gefa eftir. Tek þó vel á móti ábendingum hvar ég get fundið slíkt.
Fræðilega séð á sink varinn bolti úr karbon-stáli (heitgalviniseraður) alveg að geta tapað sink-húðuninni á kafla (t.d. þegar hann er barinn inn) án þess að tærast. Sinkhúðunin virkar þá sem anóða og gefur frá sér rafeindir og óvarið stálið í boltanum á þá ekki að tærast þótt það standi bert. Einfalt dæmi um þetta eru skrokkar skipa og báta auk bryggjuþilja þar sem anóður úr sinki, áli og magnesíum eru festar á hér og þar til fórnar. Öðru máli gegnir um bolta og augu þar sem annað hvort er úr ryðfríu eða áli en hitt úr heitgalvaniseruðu. Slíkt gengur ekki upp nema í takmarkaðan tíma. Það er því ekki að ástæðulausu sem að framleiðendur akkera og augna benda mönnum á að gera þetta ekki. -
HöfundurSvör
- You must be logged in to reply to this topic.