Stjórnin hefur ákveðið að bjóða félögum að greiða árgjald fyrir árið 2006 með millifærslu (væntanlega í heimabanka) og þannig kemst klúbburinn hjá kostnaði vegna útgáfu greiðsluseðils.
Þetta verður hægt til 15. mars en þá verður gengið í að senda greiðsluseðla á þá sem ekki hafa greitt. Árgjaldið fyrir 2006 er kr. 3.400,-.
Fyrirspurnum verður svarað í info@isalp.is og/eða gjaldkeri@isalp.is
Vinsamlega sendið kvittun úr heimabanka á „gjaldkeri@isalp.is“.
Kennitala: 580675-0509
Reikning 0111-26-001371
Kr. 3.400,-
Vinsamlega sendið kvittun úr heimabanka á „gjaldkeri@isalp.is“.
Með kveðju,
f.h. stjórnar ÍSALP
Stefán Páll Magnússon
gjaldkeri ÍSALP