Blaðamennska

Home Umræður Umræður Almennt Blaðamennska

  • This topic is empty.
  • Höfundur
    Svör
  • #44734
    0703784699
    Meðlimur

    Árni er að heyja baráttu við Broad Peak i Pakistan og áður en hann nær toppnum er búið að segja að þetta sé 3ja 8.000 m fjallið sem íslendingar klífa? Eigum við ekki að leyfa honum að toppa áður en skrifað er um sigra á því fjalli?

    En endilega hjálpið mér að rifja upp, fór Ari forsetaframbjóðandi ekki á Shishapangma en náði ekki toppi. Hvaða fleiri 8.000m tinda hafa íslendingar reynt við? Við höfum bara toppað Cho Oyu og Everest?

    „Ef taldir eru upp þeir 8.000 m tindar sem klifnir hafa verið af Íslendingum eru þeir aðeins tveir, annars vegar Everest 8.848 m og hins vegar Cou Oyu 8.201 m, og höfum við átt menn á tindi í fjórgang á hvoru fjalli fyrir sig.

    Þriðja fjallið sem bætist í flóruna nefnist Broad Peak og er 8.050 m, eins og fyrr segir. Það er í Karakorum-fjallgarðinum, á Gilgit Baltistan-sjálfstjórnarsvæðinu í norðurhluta Pakistans. Fjallið er afskekkt, umkringt skriðjöklum og í hrikalegasta fjallasal sem getur að líta hér á jörð.“

    http://mbl.is/frettir/innlent/2012/07/16/leggur_af_stad_a_tindinn/

    Óska Árna velfarnaðar og hlakka til að sjá myndir úr ferðum hans í haust (er ekki myndasýning skilyrði?)

    kv.himmi

1 umræða (af 1)
  • You must be logged in to reply to this topic.