Sælt veri fólkið.
Vildi benda á að rukkun fyrir árgjaldi klúbbsins 2012 ætti að vera komið í heimabankann hjá öllum.
Gjaldið er 4000kr eins og samþykkt var á seinasta aðalfundi.
Við sendum rukkun á þá þá sem hafa borgað eitthvert af síðastliðnum þrem árum, ef einhverjir vilja borga gjaldið en fengu ekki rukkun mega senda mér póst á
halldor86(hjá)gmail.com og ég kippi því í liðinn.
Einnig vil ég benda fólki á að rukkunin safnar hvorki vöxtum né er send í innheimtu sé ekki greitt.
Kv Dóri