
Skrifað af: God Godson Þriðjudagur, 26. maí 2009 20:21
ÍSALP er félag áhugamanna um fjallamennsku sem leggur áherslu á að vera sameiginlegur vettvangur fjallamanna og stuðla að vexti fjallamennsku á Íslandi. Nafnið dregur Alpaklúbburinn af samskonar félögum sem eru starfrækt um allan heim. Þessi félög miðla upplýsingum um fjallamennsku, halda námskeið, sjá um ferðir, o.s.frv.
ÍSALP býður í samstarfi við Íslenska Fjallaleiðsögumenn upp á námskeið í flestum þáttum fjallamennskunnar. Klúbburinn skipuleggur ferðir við flestra hæfi sem eru gráðaðar eftir erfiðleikastigi. Haldnar eru myndasýningar og umræðukvöld um klifur og fjallamennsku. Árvissir viðburðir eru meðal annars Telemark-festival í Hlíðarfjalli, Ísklifurfestival með breytilegri staðsetningu og Banff kvikmyndahátíðin. Myndarlega er staðið að útgáfustarfsemi með veglegu ársriti, útgáfu leiðarvísa og þessum vef.
ÍSALP hefur haft verulega þýðingu fyrir þróun fjallamennskunnar hérlendis. Í gegnum tíðina hafa flestir Íslenskir fjallamenn verið í klúbbnum í styttri eða lengri tíma. Reynsla félaganna er einn helsti styrkur ÍSALP.
Félagsheimili ÍSALP er að Skútuvogi 1G, 104 Reykjavík. Bílastæði og inngangur er í portinu að neðan. Gengið er inn frá Barkarvogi. ÍSALP deilir húsnæði með Klifurhúsinu.
Póstfang ÍSALP er:
Pósthólf 1054
121 Reykjavík
Iceland
Kennitala ÍSALP er 580675-0509
Ísalp hefur ekki VSK númer