Norðurlandamótið í grjótglímu
Skrifað af: Björk Hauksdóttir   
Þriðjudagur, 09. febrúar 2010 09:24
Síðastliðið haust héldu tveir klifrarar, Valdimar Björnsson (Valdi) og Kristján Þór Björnsson (Kristó), á Norðulandamótið í grjótglímu sem var haldið í Danmörku. Stjórn Ísalp bað Valda að segja okkur frá mótinu.


Síðastliðin september hringdi Stefán Steinar (innsk. í stjórn Klifurfélags Reykjavíkur) í mig og var hann þá ný kominn af fundi Klifurhússins.
Hann spurði hvort ég væri til í að fara út á Norðurlandamót með Kristjáni (Kristó) og að sjálfsögðu var ég til. Þá kom líka önnur spurning varðandi það hvort við vildum keppa í leiðslu eða boulder.

Á NM Í leiðslu ertu með úrslit á áhöldum, undanúrslit og síðast úrslitin. Hver keppendi hefur 8 mínútur til þess að klifra og samtals eru þrjár leiðir, ef maður kemst áfram í úrslitin og eru þetta þá í mesta lagi 24 mínútur af klifri ef maður kemst alla leið í úrslitin.

Í fyrra (2008) fórum við Kristó til Lillehammer á NM í grjótglímu (boulder), okkur fannst það mót skemmtilegt og við náðum líka ágætis árangri.
Tíminn til klifurs var líka lengri en á mótinu í ár, þ.e. allir keppendur fengu lengri tíma til þess að klifra hverja klifurleið/probba.

Á bouldermótinu í Lillehammer 2008 voru um 45 keppendur, þeim var skipt í þrjá hópa og fékk hver hópur einn klukkutíma til þess að klára fimm probba, þetta var flass mót. Síðan komast átta manns í úrslit og hver keppendi fær fimm mínútur á hvern probba en hann má bara skoða leiðina sem hann vinnur í og þá eru bestu stigin gefin fyrir onsight tilraun.

Nú í Nýkobing Falster fór mótið fram eftir keppnisreglum IFSC.
Þá eru keppendur settir í einangrun og allir fá númer og tíma til þess að klifra.
Síðan eru fimm þrautir til þess að klifra í og allir keppendur fá fimm mínútur til þess að reyna hvern probba.
Eftir góða upphitun og afslöppun í einangrun ertu kallaður fram í sal og þar tekur á móti þér dómari og boulder probbi, um leið og flautan hljómar þá ertu með fimm mínútur til þess að klára þrautina eða gera þitt besta, en best er að klára leiðina í fyrstu tilraun (onsight).
Eftir fyrsta probbann ertu færður á stól og þar snýrð þú baki að næstu þraut.
Biðtíminn milli boulder þrautanna er fimm mínútur og svo heyrist flaut í hljómgræjunum, það er komið að þér að klifra. Svona gengur þetta og að loknum eftir alla fimm boulder probbana má maður vera áfram inn í sal og horfa á þá sem eiga eftir að klifra.

Þetta mót var haldið í brettahöll, veggirnir eru sumir þarna alltaf en aðrir veggir voru settir upp sérstaklega fyrir mótið.Dómnefndin var mjög góð og allt fór vel fram nema kannski net upplýsingarnar sem voru birtar frekar seint áður en mótið hófst.
Boulder þrautirnar voru altílagi en ekki þær bestu. Margar voru tæpar og aðrar með ''one move wonder'' (létt klifur í eina ofur hreyfingu), kannski ekki bestu leiðir fyrir keppendur né áhorfendur, en svo ef litið er á stóru myndina þá eru bara þeir bestu sem vinna mótið og það á ekki að skipta máli hvernig þrautirnar eru.

Af þeim 24 körlum sem kepptu lentum við í 8 og 16 sæti.
Það var sára lítill munur klifurgetulega séð hjá þeim sem lentu í um 7 og 18 sætum svo þetta var frekar jafnt mót.

Hér má sjá loka niðurstöður: http://www.slouppi.net/pdf_files/NC09_Denmark.pdf

Þessi mót eru mjög skemmtileg og það er alveg frábært að Klifurfélag Reykjavíkur sendi keppendur út.
Á svona móti kynnist maður ýmsu varðandi mót af þessu tagi og líka kemst maður í kynni við góðan félagsskap, fólk sem maður á örugglega án efa eftir að hitta einhverstaðar aftur.

 

Fleiri linkar:

http://www.nmboulder.dk/results_semi_final.html

http://nfk.klatreforbund.dk/

Valdir glímir við grjótglímuprobba Valdir glímir við grjótglímuprobba Kristó leysir probba Kristó leysir probba

Myndir fengnar úr safni Valda

 
Epík í norðaustur hlíð Þverbrekkuhjúks í Öxnadal 29.11.09 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Jón Heiðar Rúnarsson   
Fimmtudagur, 17. desember 2009 00:45

Við félagarnir vorum búnir að ræða það að nú yrðum við að fara að komast í klifur því okkur var farið að klæja ískyggilega í axirnar.

Nánar...
 
Tindfjallaskáli

Tindfjallaskáli hefur verið í umsjón og varðveislu Íslenska alpaklúbbsins frá árinu 1979.

Sagan

Skálinn er nátengdur sögu fjallamennsku á Íslandi og mikilvægur fulltrúi annars hverfulla mannvirkja þessa sértæka menningararfs. Tindfjallaskáli var byggður af félaginu Fjallamenn (stofnað 1939) sem Guðmundur Einarsson frá Miðdal var í forsvari fyrir. Guðmundur hannaði útlit skálans og Karl Sæmundsson burðarvirki. Þorsteinn Þorsteinsson yfirsmiður hjó grindina í skálann í Reykjavík úr harðfuru sem rak á Skógafjöru. Byggingu skálans var lokið árið 1941 og er hann 22 fermetrar að stærð. Starfsemi Fjallamanna minnkaði til muna eftir lát Guðmundar Einarssonar árið 1963 og hún lagðist endanlega af í kringum 1970.

Nánar...
 
Búahamrar - Rauði Turninn og Gandreiðin Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sigurður Tómas Þórisson   
Föstudagur, 03. júlí 2009 09:30

Fór ásamt Ása ævintýri í eftir-vinnu þeyting í Búahömrum í gær í blíðskaparveðri. Lögðum af stað kl. 16:30 og vorum komnir heim kl. rúmlega 21. Byrjuðum á að storma upp Rauða turninn í austurhluta klettanna. Toppuðum upp á brún og röltum 200-300m (?) til vesturs eftir brúninni yfir í Gandreiðina.

Nánar...
 
Bíldudalur og Ketildalir Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Eiríkur Gíslason   
Sunnudagur, 01. febrúar 2009 09:13

Það var nokkuð snemma farið að horfa til vesturhluta landsins með staðsetningu fyrir ísfestival 2009 eftir vel heppnaðan leiðangur í Breiðdalinn í fyrra.

Nánar...
 
Fleiri greinar...
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL