Öræfin - Undirbúningskvöld fyrir festival

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrentvæn útgáfaSenda í tölvupóst

Næsta klúbbkvöld ÍSALP, miðvikudaginn 10. feb., verður tileinkað Öræfunum. Þar sem komandi ísklifurfestival verður haldið á hinu magnaða svæði Öræfum, er ekki úr vegi að spá aðeins og spögulera um þá miklu möguleika sem þar eru fyrir hendi. Ívar „Hardcore“ Finnbogason mun sýna myndir og spjalla um það sem svæðið hefur upp á að bjóða.

Farið verður yfir eitt og annað sem gott er að huga að í undirbúningi fyrir festivalið. M.a. verður rætt um öryggismál og gefst klifururum þarna tækifæri til að spjalla um allt það sem þeim liggur á hjarta og tengist svæðinu eða festivalinu almennt.

Heyrst hefur að forláta slípigræja í eigu Íslenskra Fjallaleiðsögumanna verði á staðnum og ku vera hentug í ísaxabrýningar.

Áhugamenn um Öræfin sem og að sjálfsögðu allir ísklifrar eru hvattir til að mæta.