|
Skrifað af: Björgvin Hilmarsson
|
|
Þriðjudagur, 09. mars 2010 23:53 |
Miðvikudaginn 10. mars flytur Hálfdán Ágústsson veðurfræðingur, fyrirlestur um veður í tengslum við fjallamennsku. Veður er eitthvað sem alltaf þarf að hafa í huga áður en farið er af stað í fjallaferðir. Það er gott að geta lesið í veðrið og rýnt í veðurspár svo gagn sé af en Hálfdán lumar á ýmsum fróðleik sem Ísalparar hafa gott af að frétta af og hann mun að sjálfsögðu svara spurningum um efnið.
Það er mikill fengur í að fá kappann í heimsókn. Fjölmargir Ísalparar hafa undanfarið óskað sérstaklega eftir fyrirlestri sem þessum og því ljóst að áhugi á hverskonar fjallamennskutengdum veðurpælingum er mikill.
Fyrirlesturinn hefst stundvíslega klukkan 20 og búist er við að hann standi yfir í um klukkustund. Ekki er ólíklegt að stutt hlé verði gert í miðjum klíðum en þá mun bíða ylvolgt kaffi á könnunni ef að líkum lætur.
- Stjórnin
vedur_img_5747
|
|
|
Góðar fréttir af ísaðstæðum í Öræfunum |
|
|
|
|
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
|
|
Þriðjudagur, 23. febrúar 2010 11:24 |
Gleðifréttir berast okkur úr Öræfunum þar sem ísinn þykknar og þéttist með hverjum klukkutímanum sem líður.
Einhverjar leiðir eru nú þegar í aðstæðum og samkvæmt heimamanninum styttist óðum í að fleiri fylgi í kjölfarið ef marka má veðurspána sem vart verður ísvænni. Öræfin bjóða upp á gríðarlegt magn ísleiða sem spanna alla flóruna í þeim efnum. Fullorðins verkefni bíða þar eftir leikfélögum sem hafa burði í að frumfara eða endurtaka. Minni verkefni eru þar sömuleiðis í massavís og eiga þau sjálfsagt eftir að nýtast byrjendum vel sem geta bæði æft klifurgetuna í ofanvað eða við leiðsluklifur. Gisting á vegum Ísalp verður sem fyrr í Vesturhúsum og eru þeir sem ætla að taka þátt í ísfestivali alpaklúbbsins beðnir um að skrá sig hjá Helgu Maríu á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Jafnframt eru þeir sem nú þegar hafa skráð sig beðnir um að afboða sig fari svo að þeir sjái sér ekki fært um að mæta. Til að kynda upp í mönnum má einnig benda á að leiðir í Testofunni í Stigárdal eru komnar í aðstæður en á ísfestivalinu árið 2000 fór þangað inn flokkur manna og kleif áður ófarnar ísleiðir eins og þeim væri borgað fyrir það. Endilega skoðið leiðarvísi frá Einar í Hofsnesi.
Þó lágu ekki allar mögulegar leiðir í valnum eftir þann vaska hóp og enn má skrá nöfn sín á spjöld íslenskrar fjallamennsku með frumferðum þar inni. Merkilegt þykir einnig að á sömu slóðum hefur opnast nýr möguleiki á ísleiðum með bráðnun jökla því í gili nokkru í Stigárdal eru ókannaðar og þar af leiðandi ófarnar leiðir sem enginn sá á ísfestivalinu árið 2000 þar sem gilið var fullt af jökulís á þeim tíma. Fyrir byrjendur í sportinu er bent á magnað svæði við Kvísker en um 10 mínútna gangur er að því af hlaði Kvískerjabæja. Sjá umfjöllun um svæðið á síðu Einars. Þar eru um 10 fallegar leiðir í léttari kantinum, flestar 2 spanna en einhverjar lengri. Þar sest ís að venju fyrst og helst lengst þannig að gera má ráð fyrir feitum ís á því svæði. Tilvalið til ofanvaðsæfinga.
Bestu kveðjur, Festivalsnefndin. |
|
Nýjustu fréttir af ísaðstæðum |
|
|
|
|
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
|
|
Fimmtudagur, 18. febrúar 2010 10:34 |
Festivalsnefnd þykir fyrir því að hafa af ísþyrstum klifrurum helgina og hafði því uppi áform um að skipuleggja léttan snúning í nágrenni bæjarins um helgina. En eftir skoðunarferð í gær þykir ekki fullvíst að klifuraðstæður verði öruggar um helgina. Skoðun leiddi eftirfarandi í ljós:
- Kjósarskörð: Ísmyndun í gangi en ekki komin sérstaklega langt á leið. Ís virtist þó sínu meiri vestan við veg, t.d virtist Spori vera klifranlegur úr fjarska.
- Hvalfjörður: Ísmyndun í gangi og sumsstaðar t.d í Múlafjalli hefur greinilega ekki allur ís horfið vorveðrinu ætti því að geta jafnað sig fyrr en ella. Ekki svo að skilja að mikill ís sé til staðar en þó nægur til að velja sér eina ,,feita” og kíkja nánar á. Nánari skoðun leiddi svo í ljós að binding íss við klett var afar dræm og sá ís sem eftir hafði setið víðast hvar alveg laus frá. Ekkert sást sem þótti verðugt klifurtakmark þennan daginn.
- Brynjudalur var í frekar sorglegu ástandi en Óríon virðist þó hafa haldið sínum ís að mestu. Dökk lína sást í gegnum hann þverann frá veginum og þyrfti hann því væntanlega nokkra daga í endurhæfingu áður en óhætt væri að heimsækja hann.
- Esja: Eilífsdaslur er snjóléttur en sárlega íslítill miðað við árstíma. Miðsúlan og Einfarinn er það sem virðist vera í aðstæðum þar.
- Grafarfoss er að myndast en vantar nokkra daga enn.
- Búahamrar eru íslitlir en Tvíburagil gæti að sjálfsögðu boðið upp skemmtilegan dag í mix-bolta-klifri.
Nokkrar myndir af aðstæðum er að finna hér. Einnig bendum við á glænýjar myndir á heimasíða þeirra á Björgum. Heyrst hefur af einhverjum plönum um norðurferð til að kíkja nánar á þessar aðstæður. En annars látum við ekki deigann síga og vonumst til að sjá sem allra flesta á ,,einni viku seinna festivalinu” í faðmi fjalla Öræfasveitar. Kveðja, Festivalsnefndin |
|
|
Ísfestivali frestað um viku |
|
|
|
|
Skrifað af: Sveinborg Hlíf Gunnarsdóttir
|
|
Miðvikudagur, 17. febrúar 2010 09:26 |
Nú verða lesnar fréttir
Festivalsnefnd bárust á dögunum fréttir frá iðnum Ísölpurunum sem fóru austur um helgina að ís á svæðinu væri af skornum skammti, sá ís sem almennt væri til staðar væri þunnt ísskæni og yfirleitt með rennandi vatni bakvið. Brattur ís hefði víðast hvar brotnað niður, en láréttur ís væri enn í klakaböndum.
Í gærkvöldi brá svo verr við þegar aðal ísfréttamaður Öræfasveitar staðfesti sögur þessar um ísleysi á svæðinu. Samkvæmt Einari er Stigárdalurinn, sem hann telur að sé góð mælistika á aðstæður á öðrum svæðum, næsta íslaus.
Þar með fækkar þeim klifursvæðum sem stuttur gangur er að og þó að Öræfasveitin bjóði upp á klifurmöguleika á hærri stöðum er það ekki beint í samræmi við ungmennafélagsandann sem við kjósum að einkenni ísfestivöl Ísalp.
Í ljósi aðstæðna verður því brugðið á það ráð að fresta árlegu ísfestivali alpaklúbbsins um eina viku og halda ótrauð stefnu okkar á hin makalausu ísklifursvæði Öræfanna, bara viku seinna.
Sérlegur veðurfræðingur ÍSALP, Hálfdán, segir nokkuð eindregna norðan- og norðaustanátt í kortunum næstu vikuna. Þó sé ekkert hægt að sjá með nákvæmni um þróunina en að það líti að mestu út fyrir frost, þurrviðri sunnanlands og úrkomu með köflum fyrir norðan.
Norska langtímaspáin gerir svo ráð fyrir að sá kuldi sem Öræfasveitin þarfnast sé á leiðinni.
Nánari fréttir um framvinduna á næstu dögum. |
|
Orðsending frá uppstillingarnefnd |
|
|
|
|
Skrifað af: Bragi Freyr Gunnarsson
|
|
Miðvikudagur, 10. febrúar 2010 14:01 |
|
Á næsta aðalfundi ÍSALP eru nokkur sæti í stjórn laus til umsóknar. Annars vegar 2 sæti til tveggja ára og 2 sæti til eins árs. Félögum er bent á að allir sem greitt hafa árgjald klúbbsins geta boðið sig fram. Uppstillingarnefnd bendir ÍSALP félögum á að rifja upp og lesa lög ÍSALP, en þau má finna á vefsíðu klúbbsins. Uppstillingarnefndin bendir á að aðeins er hægt að bjóða sig fram á aðalfundi til kjörs ef engin kjörgengnir félagsmenn hafa boðið sig fram fyrir aðalfund. Hægt er að senda umsóknir á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
Með kveðju, Uppstillingarnefnd
Úr lögum Ísalp: 6. grein Framboð
Framboð til formanns eða meðstjórnenda félagsins þurfa að hafa borist uppstillingarnefnd minnst 10 dögum fyrir auglýstan aðalfund og vera kynntar félagsmönnum með birtingu á vef Ísalp sem og með tölvupóstsendingu á netföng skráðra félagsmanna minnst viku fyrir aðalfund. Berist ekki framboð í öll laus embætti geta kjörgengir félagsmenn boðið sig fram í lausar stöður á aðalfundi eftir að kosningar um framkomin framboð hafa farið fram.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |