Home › Forums › Umræður › Ís- og alpaklifur › Ama Dablam – kvikmyndin
- This topic is empty.
-
AuthorPosts
-
26. May, 2008 at 22:30 #464711908803629Participant
Ég fór að sjá Ama Dablam myndina áðan og vildi bara þakka fyrir prýðisgóða mynd, eða kvikmynd eins og Ingvar vill kannski kalla hana.
Eftir að hafa lesið nokkrar bækur um/eftir Simon kallinn þá var mjög gaman að sjá hann í sínu raunumhverfi… þó er þetta eflaust eins og að labba Laugarveginn fyrir hann enda virtist það flóknasta fyrir hann í þessari göngu að sjá til þess að það væri til nóg te. (ok, smá ýkjur) En það var sérstaklega gaman að sjá hvað kallinn er orðinn rólegur, kominn með fjölskyldu og allt… en þeir sem þekkja til ættu að vita að það var mjög fjarlægur möguleiki fyrir áratug… eða tveim.
En aftur að myndinni. Hún var frábær, virkilega skemmtileg og myndræn og hafði mjög hvetjandi áhrif á mig sem semi fjallamann. Svo vakti hún mikla lukku hjá frúnni sem stundar ekki fjallasportið og ég er því handviss um að við fáum að sjá þetta einhverntíman á RÚV á “præm tæm”, enda áhugavert myndefni fyrir fleiri en bara fjallamenn/konur.
Semsagt, takk fyrir skemmtilega mynd og vonandi fáum við íslendingar að sjá meira í framtíðinni.
Hvað segja hinir 198 sem voru í salnum?
26. May, 2008 at 22:43 #52796Gummi StParticipantÞetta var náttúrulega bara snilld, ég skemmti mér mun betur á þessari mynd en á banff
Vil óska Ingvari til hamingju með frábæra fjallamynd, þetta er alveg eðal efni, manni leiðist aldrei og stutt í húmorinn.
Takk kærlega fyrir mig !
þá eru bara 197 eftir..
27. May, 2008 at 00:19 #527971704704009MemberÞessi mynd var frábær; það sem gerir hana svona frábæra er að hún segir áhugaverða sögu og hefur að auki nokkrar hliðarsögur. Það eru bara fagmenn sem hafa vald á góðri úrvinnslu hvað það snertir og hér var farið langt yfir þau gæðamörk. Og hreinlega tilþrif í persónusköpun líka. Maður lifði sig inn í þetta allt. Síðan voru klifuratriðin á lokasprettinum alveg stórfín.
Þessi vika er merkisvika í fjallamennsku, fyrsta íslenska fjallakvikmyndin í fullri lengd sýnd – og síðan Simon að troða upp á miðv.
..196…
27. May, 2008 at 08:18 #527980111823999MemberAlgjör snilldar mynd.. Vona að þeir séu farnir að plana næstu ferð/mynd..
Takk fyrir mig
195
27. May, 2008 at 13:16 #52799KarlParticipantÞetta er helv gott “myndband” hjá Ingvari
Ástæða til að smala fóki í bíó.27. May, 2008 at 14:11 #52800Arnar JónssonParticipantÞetta var bara prýðisgóð mynd, vel gerð og mjög skemmtilega upp sett. Gaman að sjá þessa te drykkjumenn í essinu sínu hehe.. Vonast bara eftir að þessi frábæra mynd eigi eftir að hvetja menn til þess að gera meira að þessu og koma með fleirri al íslenskar fjallamyndir í svipuðum dúr.
Takk fyrir mig,
Arnar..193
27. May, 2008 at 22:49 #52801SissiModeratorJæja, Dylan fans drifu sig í kvöld. Verð bara að óska þeim félögum til hamingju, verulega vel unnið og bráðskemmtilegt.
Halla hattinum mínum létt til vinstri (e. I tip my hat to you sir) fyrir því að Ingvar hafi nennt að vera með cameruna á lofti við öll þessi tækifæri, það er nefnilega voðalega auðvelt að gleyma henni bara ofan í poka þegar það er eitthvað aksjón.
Kúl!
Sissi
28. May, 2008 at 09:50 #528022502614709ParticipantTakk kærlega fyrir mig – ekki veitir af stuðningnum. Vegna góðrar aðsóknar verður myndin sýnd áfram. Netið er frábært tæki fyrir góðan boðskap t.d. hægt að senda póst á alla í vinnunni o.s.frv.!
Nýjasti Íslandsvinurinn Simon Yates er í ham – var í Skaftafelli í síðustu viku og Snæfellsnesi um helgina. Fyrirlestur um fjallaferðir og annað fallegt land í kvöld.takk
ingvarp.s. er að vinna í þessu fyrir norðan – væntanlega sýnd þar eftir helgi.
28. May, 2008 at 10:04 #528032802693959MemberTil hamingju Ingvar með glæsilega frumraun á fjallamyndasviðinu. Tek undir með þeim sem segja myndina hafa verið betri en margt annað sem var í boði á Banff. Greinilega fagmaður til klifurs og kvikmyndunar. Ekki sjálfgefið að klifra fjallið (þótt það virðist allt að því teppalagt upp á topp) og taka myndir á þrjár kamerur.
Skora á þá sem ekki áttu heimagengt í gær og fyrradag að kíkja á aukasýningu í kvöld.
Jette kul
Jón Gauti28. May, 2008 at 17:17 #52804Anna GudbjortMemberVirkilega vel gerð mynd sem er í senn hvetjandi, áhugaverð og skemmtileg.
Það var kröftugt lófatakið sem dundi í þéttsetnum salnum í gær og gott að heyra af aukasýningunni í kvöld þar sem ég þekki til ófárra sem voru farnir að naga sig í handabökin yfir að hafa ekki komist.
Takk fyrir mig!
-
AuthorPosts
- You must be logged in to reply to this topic.