EMAIL Prentvæn útgáfa

www.isalp.is

Viðburður 

Titill:
Telemarkfestival 2010
Hvenær:
12.03.2010 - 14.03.2010
Hvar:
Hlíðarfjall -
Flokkur:
Teiti

Lýsing

Hið margrómaða og margumtalaða Telemarkfestival verður haldið í Hlíðarfjalli að venju.
Hver sá sem þangað hefur mætt veit að Telemarkfestivalið er eitthvað sem ekki má missa af.

Dagskrá Telemarkfestivalsins er hefðbundin enda óþarfi að breyta því sem alltaf heppnast vel.

  • Föstudagur 13. mars:
    Skíðað í flóðljósum og mittisdjúpu.
  • Laugardagur 14. mars:

  • Hin alræmda, samhliða svigkeppni setur sitt mark á daginn auk búningakeppni einstaklinga og liða. Svigkeppnin er með útsláttarformi sem gerir hana æsispennandi.
  • Skráning í keppnina fer fram við startið og lýkur kl.13 en þá hefst keppnin. Keppt er í kvenna- og karlaflokkum.
  • Heyrst hefur af því að fagrir tónar dj Ötzi og félaga muni óma í nálægð við fjallið á aprés ski tíma. Mæting í fjallið er eina leiðin til að komast að því hvar og hvenær hið rómaða aprés ski mun fara fram.
  • Ærlegt og veglegt Telemark-hóf fer fram í Íslandsbænum á Hrafnagili á laugardagskvöld. Mæting er kl. 19.30 og hefst borðhald ekki löngu síðar. Á matseðlinum er lambakjötspottréttur með blóðbergi, steiktar kartöflukrókettur og fleira gúmmelaði. Þar sem ekki er bar á staðnum þarf hver og einn að sjá um sína drykki sjálfur...Veglegir vinningar verða dregnir út og verðlaun veitt sigurvegurum í keppnum dagsins.
  • Garðbæingar munu sjá um verðlaunaafhendinguna en Fjallakofinn ásamt fleiri góðum stuðningsaðilum hafa gefið vegleg verðlaun.
  • Að verðlaunaafhendingu lokinni hefst svo dansinn.
  • Nauðsynlegt er að skrá sig á Telemark-hófið og kostar matur og skemmtun 2500 kr sem greiðist í reiðufé við inngang.
  • Sunnudagur 15. mars :
  • Hópferð upp á topp Hlíðarfjalls. Brottför kl.12 frá Strýtuskála. Muna eftir snjóflóðaþrenningunni!



Til að auðvelda alla skipulagningu þá er mikilvægt að þeir sem ætla að mæta í hófið um kvöldið skrái sig hér á heimasíðu ÍSALP. Skráning í samhliða svigkeppnina fer fram í fjallinu.
Ekki er nauðsynlegt að vera meðlimur í ÍSALP til að vera með í viðburðum dagsins.
Þeir sem eru ekki meðlimir í ÍSALP þurfa samt að skrá sig inn á ÍSALP síðuna og til að koma í veg fyrir að fá sendan gíróseðil þá er best að skrifa "Telemarkfestival" í athugasemd með skráningunni.
Ef einhverjar spurningar vakna vegna skráningar er velkomið að hafa samband við Sveinborgu/ sveinborg (at) hotmail (punktur) com

Staður

Hvar:
Hlíðarfjall

Lýsing

Vantar nánari lýsingu

Skráðir notendur: